Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
„Er táknmynd alls þess sem Real Madrid vill standa fyrir“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Real Madrid hefur staðfest að fyrirliðinn Dani Carvajal, 34 ára, muni yfirgefa félagið í sumar. Hann var hjá Madrídingum í 23 ár og hefur leikið 450 leiki fyrir liðið.

Hann kom í akademíuna 2002 og lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir spænska liðið 2013, eftir að hafa tekið eitt ár hjá Bayer Leverkusen. Frammistaða hans í Þýskalandi gerði það að verkum að Real Madrid nýtti sér ákvæði um að kaupa hann til baka.

Hann á magnaða titlaskrá með Real Madrid og unnið Meistaradeildina sex sinnum. Hann er aðeins einn af fimm leikmönnum sem hafa afrekað það. Hann byrjaði í öllum sex úrslitaleikjunum sem hann vann.

Hann hefur unnið spænska meistaratitilinn fjórum sinnum, spænska bikarinn tvisvar og HM félagsliða sex sinnum.

Meiðsli og koma Trent Alexander-Arnold hafa gert það að hlutverk hans hjá Real Madrid hefur minnkað og hann aðeins spilað 892 leiki í La Liga á tímabilinu.

„Carvajal er goðsögn og andlit Real Madrid og akademíu félagsins. Hann er táknmynd alls þess sem Real Madrid vill standa fyrir. Þetta félag verður alltaf hans heimili," segir Florentino Perez, forseti Real Madrid.
Slapp
banner
banner