Luka Modric, 40 ára miðjumaður AC Milan, er í 26 manna landsliðshópi Króata fyrir HMen Zlatko Dalic landsliðsþjálfari opinberaði hópinn í dag.
Modric æfir með grímu eftir að hafa kinnbeinsbrotnað í leik gegn Juventus í lok apríl en ætti að vera orðinn góður fyrir mótið.
Modric æfir með grímu eftir að hafa kinnbeinsbrotnað í leik gegn Juventus í lok apríl en ætti að vera orðinn góður fyrir mótið.
Modric hefur lengi verið lykilmaður hjá Króatíu síðustu ár, hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik HM 2018 og undanúrslit 2022.
Joski Gvardiol, varnarmaður Manchester City, er einnig valinn þrátt fyrir að hafa verið lengi á meiðslalistanum. Dalic segir að Gvardiol muni fá tækifæri í vináttulandsleikjum til að byggja upp leikæfingu fyrir HM.
Króatía verður í L-riðli ásamt Englandi, Panama og Gana.
Markverðir: Dominik Livakovic (Dinamo Zagreb), Dominik Kotarski (FC Kaupmannahöfn), Ivor Pandur (Hull City)
Varnarmenn: Josko Gvardiol (Manchester City), Duje Caleta-Car (Real Sociedad), Josip Sutalo (Ajax Amsterdam), Josip Stanisic (Bayern München), Marin Pongracic (Fiorentina), Martin Erlic (Midtjylland), Luka Vuskovic (Hamburg)
Miðjumenn: Luka Modric (AC Milan), Mateo Kovacic (Manchester City), Mario Pasalic (Atalanta), Nikola Vlasic (Torino), Luka Sucic (Real Sociedad), Martin Baturina (Como), Kristijan Jakic (Augsburg), Petar Sucic (Inter Milan), Nikola Moro (Bologna), Toni Fruk (Rijeka)
Sóknarmenn: Ivan Perisic (PSV Eindhoven), Andrej Kramaric (Hoffenheim), Ante Budimir (Osasuna), Marco Pasalic (Orlando City), Petar Musa (Dallas), Igor Matanovic (Freiburg)



