Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 13:57
Innkastið
Segir Jóa Kalla á góðri leið með að stúta FH - „Versta sem ég hef séð á mínum fjörutíu árum“
Frá leiknum gegn Fylki.
Frá leiknum gegn Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er án sigurs í síðustu þrettán deildarleikjum.
FH er án sigurs í síðustu þrettán deildarleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Það versta sem ég hef séð á mínum fjörutíu árum sem stuðningsmaður FH.“
„Það versta sem ég hef séð á mínum fjörutíu árum sem stuðningsmaður FH.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Töpuðu gegn KA í gær.
Töpuðu gegn KA í gær.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Yfirgaf FH eftir aðeins fimm mánuði.
Yfirgaf FH eftir aðeins fimm mánuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er enn án sigurs eftir fyrstu sjö umferðir Bestu deildarinnar. Liðið tapaði í gær gegn KA, þar áður tapaði liðið 5-0 gegn Lengjudeildarliði Fylkis í Mjólkurbikarnum.

„Þetta er býsna þungt. Maður sér það líka á mætingunni á völlinn. Maður átti ekki von á mörgum frá Akureyri í Kaplakrika, en FH-megin var líka fámennt,“ sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu í gær þar sem staða FH var rædd.

Getur sætið hitnað?
„Að koma til baka eftir 5-0 tap gegn Lengjudeildarliði og tapa þessu svona, þó að þetta sé ekki versti FH leikur sem ég hef séð í sumar.“

„Núna hlýtur maður að fara spyrja sig - er farið að hitna undir Jóa Kalla? Getur sætið orðið heitt hjá þjálfara sem er ráðinn í þessa vegferð og með allar þessar yfirlýsingar? Í lok dags er hann með tvö stig eftir sjö umferðir,“
sagði Valur jafnframt.

FH-ingurinn Magnús Haukur Harðarson tók því næst til máls: „Það er frábær spurning. Ég er búinn að fara fram og til baka með ráðninguna á Jóa Kalla. Ég setti fram á Twitter í vikunni að hann hafi stútað Skagamönnum.“



„Þá er ég ekki endilega að tala um árangurinn, að hann hafi endað í 5. sæti og bjargað liðinu frá falli í Covid. Heldur innan frá, þar rúlluðu í gegn 45 til 50 leikmenn á þeim tíma sem hann er þar. Hann hunsar yngri flokka starfið uppi á Skaga að mörgu leyti. Vissulega spilar hann syni sínum og eitthvað svona, 'fair play' enda efnilegur drengur.“

„En ef þú spyrð Skagamenn hvað þeim finnst um hans tíma uppi á Skaga, það var enginn að óska eftir því að hann kæmi aftur þrátt fyrir að þá vantaði þjálfara í fyrra,“
sagði Magnús.

Allt mjög skrítið
Hvers vegna var hann þá ráðinn til að stýra þessari vegferð?

„Ég er kominn að þeirri niðustöðu að hann hafi selt FH eitthvað verkefni. Ég veit að menn eru ekkert duglegastir að mæta til vinnu þarna uppi í Kaplakrika. Ég ætla ekkert að fara að tala um yfirmann knattspyrnumála neitt sérstaklega hérna.

En á sama tíma er þetta rosalega furðulegt. Það mátti auðvitað ekkert tilkynna Jóa eða neitt. Þetta var eins og í Harry Potter mynd, það mátti ekki segja nafnið,“
segir Magnús og vitnar þar í Voldemort.

„Síðan er hann ráðinn og það er talað um einhverjar pressutölur og að minnka meðalaldurinn, sem hefur tekist, enda var mönnum bara ýtt þarna í burtu og alls konar spilarar fengið mínútur, sem er flott eins og Benjamín sem ég er mjög hrifinn af.“

Eins og hann sé að spila FIFA
„Málið með Jóa Kalla er svo að hann er allan leikinn á hliðarlínunni eins og hann sé að spila FIFA. Ég er að þjálfa 3. flokk kvenna og ég stend ekki á hliðarlínunni gargandi allan leikinn. Ég er búinn að leggja upp leikinn.

Þetta stingur mig ofboðslega mikið, þú sérð engan þjálfara gargandi svona á leikmennina í heilar nítíu mínútur. Þetta segir mér að skipulagið sé ekki í lagi. Leik eftir leik erum við að sjá þetta aftur og aftur,“
sagði Magnús og hélt áfram.

„Hann hefur engin svör. Eins og mátti sjá á móti Fylki, þar var liðið var bara að þjást. Fylkismenn voru ekkert frábærir en þetta versnaði samt í seinni hálfleik. Þetta varð líka verra í seinni hálfleik á móti Fram og segir mér að leikstjórnunin á meðan leik stendur er ömurleg.“

„FH er með tvö stig, liðið er sautján stigum frá toppnum eftir sjö leiki. Það er ekki ásættanlegt fyrir neinn FH-ing sem hefur gengið í gegnum hæðir og lægðir í þessum blessaða fótbolta. Þetta er það versta sem ég hef séð á mínum fjörutíu árum sem stuðningsmaður FH,“ sagði Magnús.

Yfirlýsingin til skammar
Magnús var ósáttur með söluna á Kára Kristjánssyni sem var seldur aftur til Þróttar í upphafi mánaðar aðeins fimm mánuðum eftir að hann var keyptur til FH. Þá skaut hann jafnframt á Davíð Þór Viðarsson og orð hans í tilkynningu FH eftir söluna á Kára.

Í tilkynningu FH var eftirfarandi haft eftir Davíð: „Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið.“

„Hvernig klúðrar þú þessu? Þú selur leikmanni verkefni og hlutverk hans sést á undirbúningstímabilinu. Svo þegar tímabilið hefst er hann allt í einu mættur á kantinn. Svo fer hann á fund og fær engin svör um hvað er í gangi. Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing frá Davíð varðandi Kára er til skammar,“ sagði Magnús að lokum.
Innkastið - Vafasöm vegferð
Slapp
banner