Býst við Hrannari áfram í teyminu - „Þurftu ekki á meira áreiti að halda“

Fenginn í Garðabæinn í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fenginn í Garðabæinn í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, býst við því að aðstoðarþjálfarinn Hrannar Bogi Jónsson verði áfram í teymi Stjörnunnar eftir brottrekstur Jökuls Elísabetarsonar.
Hrannar var í teymi Stjörnunnar gegn Breiðabliki á þriðjudaginn síðastliðinn. Hann fékk að líta rauða spjaldið frá Ívari Orra eftir munnsöfnuð. Stjarnan kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir og enduðu leikar 4-4.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 4 Breiðablik
Jökull Elísabetarson fékk Hrannar sér til aðstoðar í vetur en þeir höfðu áður starfað saman hjá Augnabliki. Hrannar kom frá Augnabliki þar sem hann hafði verið aðalþjálfari síðustu þrjú tímabil.
Jón Þór var spurður út í stöðu Hrannars í viðtali eftir leik og hvort að hann búist við honum áfram. „Já ég geri ráð fyrir því að hann verði það. Hann verður það þó að vísu ekki í næsta leik þar sem ÞÞÞ (Þórður Þorsteinn, 4. dómari) sá til þess að ég þarf að finna einhvern annan með mér til Eyja,“ sagði Jón Þór.
Var það ákvörðun Jóns Þórs eða stjórnarinnar að hann yrði áfram?
„Eins og ég sagði þá snerist þetta svolítið um að vera ekki að breyta því sem þarf ekki að breyta og áreitið á leikmenn hefur verið gríðarlega mikið um helgina og þeir þurftu ekkert á því að halda að ég kæmi hér inn og skapaði meira áreiti. Þegar svona atburðarás fer af stað hjá liði þá er þetta svoleiðis eins og bíll að keyra á 100 kílómetra hraða inn í hringtorg, hring eftir hring, þannig það þurfti bara aðeins að róa það,“ sagði Jón Þór að lokum.