Fotbolti.net
18.06.26 - 23:06
Brynjar Ingi Erluson

Mjólkurbikar kvenna: Grindavík/Njarðvík í undanúrslit eftir endurkomusigur

Ása Björg skoraði sigurmarkið í framlengingu

Ása Björg skoraði sigurmarkið í framlengingu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Stjarnan
0-1 Hrefna Jónsdóttir ('50 )
1-1 Emma Nicole Phillips ('79 )
2-1 Ása Björg Einarsdóttir ('96 )
Lestu um leikinn
Grindavík/Njarðvík varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld þegar liðið vann frækinn 2-1 sigur á Stjörnunni eftir framlengdan leik á Stakkavíkurvelli.

Það var vitað fyrir leikinn að sigurvegarinn myndi mæta Fram í undanúrslitunum, en dregið var á RÚV eftir 1-0 sigur Þróttar á Víkingi. Þróttarar munu mæta ÍBV í Laugardalnum.

Grindavík/Njarðvík var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik, meira með boltann og skapaði sér fleiri færi.

Hrefna Jónsdóttir fékk besta færi Stjörnunnar á 7. mínútu. Stjarnan vann boltann á miðsvæðinu og Hrefna var send í gegn, en Genevieve sá við henni í markinu.

Hildur Katrín Snorradóttir var hættuleg hjá Grindavík/Njarðvík og fékk tvö mjög góð færi, en brást bogalistin í bæði skiptin.

Heimakonur áttu frábæran fyrri hálfleik en fengu skell í byrjun síðari hálfleiks þegar Hrefna kom Stjörnunni yfir. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir átti flottan sprett upp völlinn og náði skoti sem fór af varnarmanni Grindavíkur/Njarðvíkur og fyrir Hrefnu, sem stýrði boltanum í netið.

Stjarnan náði öllum tökum á leiknum eftir markið. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir átti frábært skot sem Genevieve varði aftur fyrir endamörk.

En þetta er bikarinn og þar gerast ævintýrin. Emma Nicole Phillips jafnaði á 79. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Tinnu Hrannar Einarsdóttur.

Markið fleytti heimakonum í framlengingu og gaf þeim aukna trú á að komast áfram í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Ása Björg Einarsdóttir sá til þess með marki á 96. mínútu. Eva Marie átti slæma sendingu til baka á Bridgette í markinu. Hún náði til boltans á undan Ásu en hreinsunin fór af Ásu og í netið. Óheppilegt mark fyrir gestina en heimakonur voru í skýjunum.

Grindavík/Njarðvík var líklegra til að bæta við en fá á sig jöfnunarmark eftir það. Hildur Katrín var að valda usla í framlínunni, komst ein í gegn og ætlaði að sóla Bridgette í markinu, sem náði að bjarga á síðustu stundu.

Stjarnan reyndi að ná í jöfnunarmark og tryggja að minnsta kosti vítakeppni en hafði ekki erindi sem erfiði. Grindavík/Njarðvík tók síðasta undanúrslitasætið og mætir því Fram í Úlfarsárdalnum. Stjarnan er úr leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.