Fotbolti.net
18.06.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Þykir virkilega vænt um Fram en vonandi tapa þeir stigum á sunnudag"

Borgfirðingurinn lék með meistaraflokki Fram 2016-19 og var þar á undan í yngri flokkum félagsins.

Borgfirðingurinn lék með meistaraflokki Fram 2016-19 og var þar á undan í yngri flokkum félagsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætti KR í toppslag á þriðjudag og strax á sunnudagskvöld er næsti toppslagur þegar Íslandsmeistararnir fara í Úlfarárdal og mæta þar Fram. Þar mætast topplið deildarinnar og liðið í 3. sæti.

Helgi Guðjónsson kom frá Fram í Víking og ræddi hann við Fótbolta.net í dag.
Helgi Guðjóns: Þetta var fyrir vin minn Róbert Laufdal
TENGT EFNI

Helgi Guðjóns: Þetta var fyrir vin minn Róbert Laufdal

Fram ekki komið Helga mikið á óvart
„Það leggst mjög vel í mig að fara í leik gegn Fram, þeir eru búnir að spila hrikalega vel í sumar og koma mörgum á óvart. Þeir voru svolítið búnir að hóta því í fyrra að geta spilað svona eins og þeir hafa gert í ár. Þetta kemur mér því ekki mikið á óvart, nema kannski hversu vel þeir hafa náð að halda dampi. Þeir eru búnir að vinna marga leiki og ef við værum ekki búnir að spila jafnvel og við höfum gert, sem er smá óeðlilega góð byrjun miðað við síðustu ár, þá væru þeir ennþá nær. Þeir eru búnir að spila mjög vel og við þurfum að vera gjörsamlega á tánum í þeim leik. Þeir sækja hratt og á mörgum mönnum, jafnvel þótt þeir séu í fimm manna vörn. Þeir keyra hratt og Kennie (Chopart) kemur upp úr hafsentinum eða bakverðinum og þeir geta refsað með mjög mörgum mönnum. Við þurfum að vera 100% í þeim leik, ekkert annað í boði," segir Helgi.

Ánægður að Fram gangi vel
Fylgist þú sérstaklega vel með Fram samanborið við önnur lið?

„Já, ég fylgist meira með þeim. Mér þykir virkilega vænt um Fram, var þar í nokkuð mörg ár. Mér finnst virkilega gaman að þeim sé að ganga vel, en vonandi tapa þeir stigum á sunnudag."

Líður eins og liðið sé að fara vinna
Víkingur hefur unnið ellefu tíu deildarleiki í röð eftir jafntefli í fyrstu umferð. Er tilfinningin eins fyrir alla leiki, mætið þið í Víkina eða á útivöll og ykkur líður eins og þið séuð að fara vinna'

„Já, smá. Tilfinningin að fara í leik er alltaf skemmtileg og þú veist aldrei hvað gerist, en mér líður mjög vel með það á hvaða staða liðið er. Við erum á rosalega góðum stað og sama hvað gerist og hvaða aðstæður myndast þá náum við að díla við það, Liðið er á þeim stað að tilfinningin er smá eins og við séum að fara vinna alla leiki, en það getur breyst hratt eins og maður hefur séð í boltanum. Það þarf kannski ekki nema eitt áfall, þá gæti þetta farið hratt. Menn þurfa alltaf að vera með hausinn 100% skrúfaðan á."

Stærð hópsins lykilinn að velgengninni
„Mér finnst þetta vera mikið því að þakka að við erum með rosalega góðan hóp og það eru menn fyrir utan hóp sem hafa átt þvílíkan feril og gætu spilað með öllum liðum í deildinni. Ástæðan fyrir því að við erum svona góðir er að mínu mati þessi ógeðslega stóri hópur, það skiptir engu máli hver kemur inn og mönnum líður alls ekki illa að fá inn mann af bekknum, líður jafnvel bara betur. Ég held að það sé ástæðan," segir Helgi.
'Liðið er á þeim stað að tilfinningin er smá eins og við séum að fara vinna alla leiki'

'Liðið er á þeim stað að tilfinningin er smá eins og við séum að fara vinna alla leiki'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég held að það sé ástæðan'

'Ég held að það sé ástæðan'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur unnið þrjá leiki í röð og situr í 3. sæti deildarinnar.

Fram hefur unnið þrjá leiki í röð og situr í 3. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.11+3031
2KR11+1325
3Fram10+1023
4Breiðablik10+716
5ÍA10-315
6Valur11-415
7Stjarnan11-411
8Keflavík10-711
9KA10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.