Fotbolti.net
18.06.26 - 22:52
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham stórhuga á markaðnum - Skrá sig í baráttuna um Fernandes

Tottenham stórhuga á markaðnum - Skrá sig í baráttuna um Fernandes
Canon

Mynd: EPA

Tottenham ætlar að láta til sína taka á félagaskiptamarkaðnum í sumar, en David Ornstein hjá Athletic, segir að félagið sé komið í baráttuna um portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes, sem er á mála hjá West Ham.
Tottenham átti ömurlegt tímabil í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og verður ekki í Evrópukeppni á næstu leiktíð.

Roberto De Zerbi tók við liðinu í mars og náði að afstýra falli í lokaumferðinni. Hann ætlar nú að sækja mikla styrkingu í sumar til að koma liðinu aftur í hóp fremstu liða.

Á dögunum var greint frá því að Tottenham væri komið í baráttuna um Sandro Tonali, miðjumann Newcastle United, sem er metinn á um 100 milljónir punda. Félagið vill einnig fá Mateus Fernandes með honum á miðjuna.

Ornstein segir að áhugi Tottenham á Fernandes sé drifinn áfram af De Zerbi, en Portúgalinn féll með West Ham undir lok síðasta tímabils og ljóst er að Fernandes verður ekki áfram hjá félaginu.

Samkvæmt heimildum Athletic ætlar West Ham að reyna að fá 80 milljónir punda fyrir Fernandes, sem er einnig á óskalista Manchester United, Real Madrid, Arsenal og Paris Saint-Germain.

Fernandes, sem er 21 árs gamall, kom að tíu mörkum í öllum keppnum með Hömrunum á síðustu leiktíð og kom til greina sem leikmaður ársins hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.