Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. júlí 2018 13:30
Hafliði Breiðfjörð
FH lánar Selmu Dögg í Val (Staðfest)
Selma Dögg í leik gegn Val í sumar. Hún hefur nú verið lánuð til félagsins.
Selma Dögg í leik gegn Val í sumar. Hún hefur nú verið lánuð til félagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur lánað miðjumanninn Selmu Dögg Björgvinsdóttur til Vals út tímabilið og hún er þegar komin með leikheimild með Val.

Hún er komin með leikheimild og má því spila með Val gegn Selfossi í Pepsi-deildinni í kvöld.

Selma spilaði síðast deildarleik með FH gegn Val 24. júní síðastliðinn en hefur síðan ekki komið við sögu.

Hún hefur spilað 8 leiki í Pepsi-deildinni í sumar og einn í Mjólkurbikarnum.

Hún er uppalin í Val en gekk í raðir FH 1. júlí árið 2015.

Nú þremur árum síðar er hún komin aftur heim í Val.
Athugasemdir
banner