Fotbolti.net
18.07.20 - 18:52
Daníel Smári Magnússon

Arnar Grétarsson: Þetta er hópur með gæði

Auglýsing
Arnar Grétarsson hefur þjálfaraferil sinn hjá KA með sigri.

Arnar Grétarsson hefur þjálfaraferil sinn hjá KA með sigri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Ég er náttúrulega fyrst og fremst gríðarlega sáttur með þrjú stigin. Mér fannst við byrja leikinn gríðarlega vel, fyrstu 20-25 mínúturnar. Þá fannst mér við ráða ferðinni gjörsamlega, en svo hægt og sígandi þá komust Gróttumenn meira og meira inní leikinn,'' sagði Arnar Grétarsson, nýráðinn þjálfari KA eftir dramatískan 1-0 sigur á Gróttu í Pepsi Max deild karla í dag.
„Leikurinn jafnaðist eftir 20-25 mínúturnar, en mér fannst samt við alltaf vera sterkari aðilinn. Það er bara ekki nóg, þú þarft að skora og Grótta fékk alveg sína séns. En ég held nú svona heilt yfir að þá höfum við verið sterkari aðilinn og ef annað liðið átti skilið að sigra, þá hafi það kannski verið við.''

Arnar er nýtekinn við liðinu og er enn að að kynnast leikmannahópnum. Aðspurður um hvernig honum litist á hópinn, sagði Arnar:

„Bara mjög vel. Þetta er hópur með gæði og auðvitað þarf að drilla hópinn saman með þeim áherslum sem mig langar að koma til skila. Þetta er kannski ekki "ideal" tími til að detta inn vegna þess að það eru 3-4 dagar á milli leikja. Sem þýðir bara það að þú ert að reyna að nýta þann tíma sem þú færð á milli leikja.''

Næsti leikur KA er gegn FH, þann 22. júlí. Þar eru nýir menn í brúnni sömuleiðis, þeir Logi Ólafsson og Eiður Smári Guðjohnsen.

„Það eru allir sem að búa við það sama. Við og FH-ingarnir sem erum með sama vandamálið. Við hittumst á miðvikudaginn, sagði Arnar Grétarsson að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.