Fotbolti.net
18.08.15 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Fjórir úr Man City

Sergio Aguero.

Sergio Aguero.

Canon

Mynd: Getty Images

Annarri umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gærkvöldi. Manchester City sigraði Chelsea 3-0 í fyrradag og á fjóra menn í lið umferðarinnar hjá Whoscored.com en liðið má sjá hér að neðan.

Joe Hart var öflugur í marki Manchester City gegn Chelsea og þeir Aleksandar Kolarov og Fernandinho áttu einnig góðan dag. Frammi var svo Sergio Aguero í stuði.

Romelu Lukaku var einnig í stuði frammi hjá Everton í 3-0 útisigri á Southampton og þar átti Ross Barkley góðan leik á miðjunni. Í vörninni var Phil Jagielka síðan eins og klettur.

Matteo Darmain hjálpaði Manchester United að halda hreinu gegn Aston Villa og Sebastien Bassong var góður í sigri Norwich á Sunderland.

Jefferson Montero, kantmaður Swansea, fór illa með Daryl Janmaat og félaga í Newcastle og Riyad Mahrez skoraði annan leikinn í röð með Leicester.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.