Kjartan: Ég er ánægður með viljann og baráttuna
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir tók í kvöld á móti Selfossi í 15. umferð Pepsi Max deildar kvenna. Leiknum lauk með 3-4 sigri Selfyssinga. Kjartan var sáttur með frammistöðuna en vonsvikinn með niðurstöðuna.
„Ég er hundfúll með tapið en ánægður með viljann og baráttuna. Við lendum 2-0 undir en rífum okkur í gang og svörum því, ég er ánægður með það. En ég er svekktur með föstu leikatriðin."
„Þetta féll ekki alveg með okkur, við fengum færin til að klára leikinn en nýttum þau ekki en viljann hefur vantað í sumar en hann er að koma og það er jákvætt."
„Við eigum fjóra leiki eftir, við getum unnið þá alla en við getum líka tapað þeim öllum. Ég býst bara við baráttu fram á síðasta leik."
Halldór Steinsson, liðsstjóri, fékk rautt spjald í leiknum. Kjartan segir að þeir hafi verið óánægðir með dómgæsluna en vildi þó ekki fara nákvæmlega út í hvaða atriði það voru sérstaklega.
„Við vorum að pirrast út í dómgæslu og annað. Það voru þættir sem voru að stuða okkur og við vorum hátt stemmdar. Það var þarna rúllandi bolti sem hann sparkaði í og auðvitað á hann ekkert að gera það."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.