Fotbolti.net
18.08.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

5. deild: RB og Léttir með nauma sigra

Sigla lygnan sjó

5. deild: RB og Léttir með nauma sigra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það fóru tveir leikir fram í 5. deild karla fyrr í kvöld þar sem RB og Léttir fóru með sigra úr býtum í B-riðli.
RB lenti undir á heimavelli gegn Kríu er liðin mættust í Reykjanesbæ en tókst að jafna fyrir leikhlé, svo staðan var 1-1 þegar lið gengu til búningsklefa.

Konstantin Sadenko skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins í upphafi síðari hálfleiks og urðu lokatölur 2-1. RB er í þriðja sæti með 19 stig eftir 13 umferðir og á ekki möguleika á sæti í úrslitakeppni.

Léttir náði forystunni á heimavelli gegn BF 108 og leiddu heimamenn í hálfleik, en gestirnir úr Fossvoginum jöfnuðu úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Staðan hélst jöfn allt þar til í uppbótartíma, þegar Mikael Máni Hermannsson gerði sigurmark leiksins.

Lokatölur urðu því 2-1 og er Léttir einu stigi á eftir RB á stöðutöflunni.

RB 2 - 1 Kría
0-1 Markús Þórðarson ('27 )
1-1 Leonardo Norbert Mitruscsak ('32 )
2-1 Konstantin Sadenko ('52 )

Léttir 2 - 1 BF 108
1-0 Viktor Dagsson ('29 )
1-1 Tristan Egill Elvuson Hirt ('75, vítaspyrna)
2-1 Mikael Máni Hermannsson ('91)
5. deild: RB og Léttir með nauma sigra
Canon

Mynd: Eiríkur Arnar Hansen

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Hamrarnir13+2234
2Stokkseyri13+1827
3RB13+519
4Léttir13-718
5BF 10813-317
6KB13-1415
7Kría13-814
8KM13-137
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.