18.08.26 - 13:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Akkúrat ár á milli marka hjá þeim markahæsta í sögunni
Frábærar fréttir fyrir Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrick Pedersen skoraði sín fyrstu mörk í Bestu deildinni í heilt ár þegar þegar hann skoraði tvennu gegn KA í gær. Það eru frábærar fréttir fyrir Valsara að þeirra besti markaskorari er að komast í gang.
Patrick var frá í tæpt ár eftir að hafa slitið hásin, en hann sneri aftur á völlinn fyrir mánuði síðan.
Hann lagði upp tvö mörk í Hersegóvínu þegar Valur sló út Zrinjski í forkeppni Evrópudeildarinnar, sem var fyrsti byrjunarliðsleikurinn eftir meiðslin, en fyrstu mörkin hans í Valstreyjunni á þessu tímabili komu í gær.

Mörkin voru keimlík, komu eftir löng innköst frá Samúel Kára Friðjónssyni. Danska markavélin var réttur maður á réttum stað inn á teignum og kom boltanum í netið.
Patrick fór af velli í stöðunni 3-4 en lokatölur urðu 4-4 þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson náði að jafna metin á lokakaflanum.
Patrick, sem varð markakóngur á síðasta tímabili þrátt fyrir að missa af síðustu tveimur mánuðum tímabilsins, er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar.
Síðasta markið hans á síðasta tímabili kom gegn ÍBV 17. ágúst, en í næsta leik á eftir, bikarúrslitaleiknum gegn Vestra, sleit Patrick hásin.
Valur er í baráttu um að enda í efri helmingi Bestu deildarinnar og þarf að safna stigum í síðustu þremur leikjum sínum til að ná því.
Næstu leikir Vals
sunnudagur 23. ágúst
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
sunnudagur 30. ágúst
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
sunnudagur 6. september
14:00 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)

Patrick Pedersen skoraði tvö keimlík mörk gegn KA! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/vRn6ZaiSHJ
— Besta deildin (@bestadeildin) August 17, 2026

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð