18.08.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bayern kom til baka og sigraði í seinni hálfleik
Mæta Dortmund um helgina

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Heidenheim 2 - 4 FC Bayern
1-0 Yannick Wagner ('5)
1-1 Felipe Chavez ('25)
2-1 Julian Niehues ('44)
2-2 Arijon Ibrahimovic ('47, víti)
2-3 Luis Diaz ('78)
2-4 Nathaniel Brown ('83)
1-0 Yannick Wagner ('5)
1-1 Felipe Chavez ('25)
2-1 Julian Niehues ('44)
2-2 Arijon Ibrahimovic ('47, víti)
2-3 Luis Diaz ('78)
2-4 Nathaniel Brown ('83)
Þýskalandsmeistarar FC Bayern mættu til leiks gegn Heidenheim, sem féllu á síðustu leiktíð, í síðasta æfingaleik sínum fyrir upphaf þýska tímabilsins.
Vincent Kompany þjálfari mætti til leiks með ungt og tilraunakennt byrjunarlið og leiddi Heidenheim 2-1 í leikhlé.
Arijon Ibrahimovic jafnaði metin úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og tóku Bæjarar öll stjórn á vellinum eftir sjöfalda skiptingu.
Luis Díaz og Michael Olise eru meðal þeirra sem komu inn af bekknum og tengdu þeir skömmu síðar til að taka forystuna fyrir Bayern.
Nathaniel Brown, sem var skipt inn í hálfleik, skoraði að lokum síðasta mark leiksins til að innsigla sigur Bayern.
Bayern spilar við Borussia Dortmund í úrslitaleik þýska ofurbikarsins um komandi helgi og tekur svo á móti Stuttgart í fyrstu umferð nýs deildartímabils.