Fotbolti.net
18.08.26 - 09:55
Kári Snorrason

Chelsea hækkar verðmiðann á Enzo - Galatasary býður Bruno himinhá laun

Hækka verðmiðann á Enzo.

Hækka verðmiðann á Enzo.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Chelsea rukkar hátt, Galatasary vill Bruno Fernandes og Barcelona býður hinn efnilega Marc Casado út. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Manchester City þarf að greiða Chelsea meira en 120 milljónir punda fyrir argentínska miðjumanninn Enzo Fernández (25) ef félagið ætlar að ganga frá kaupum á honum fyrir gluggalok. (The Telegraph)

Chelsea vill fá í kringum 100 milljónir punda fyrir portúgalska kantmanninn Pedro Neto (26) í sumar. Sádi-arabíska félagið Al-Hilal hefur áhuga á Neto. (Daily Mail)

Man City, Arsenal og Tottenham hafa einnig áhuga á Neto. Hann var keyptur til Chelsea frá Wolves á 54 milljónir punda fyrir tveimur árum. (Metro)

Man Utd hefur verið boðið að kaupa spænska miðjumanninn Marc Casado (22), frá Barcelona en Börsungar hafa sett hann á sölulista. (Sport)

Þrátt fyrir tregðu Manchester United til að selja hefur Galatasaray boðið Bruno Fernandes (31) 18,3 milljónir punda á ári, sem er tvöföld núverandi laun hans, til að freista hans frá Old Trafford. (The Telegraph)

Liverpool hefur enn mikinn áhuga á tvíeyki PSG, Bradley Barcola (23) og Ibrahim Mbaye (18). Talið er um að samanlagt kaupverð fyrir franska kantmanninn og senegalska framherjann gæti numið 155 milljónum punda. (Teamtalk)

Bayern Munchen er bjartsýnt á að ná samkomulagi við enska framherjann Harry Kane (33) um nýjan samning. Kane á aðeins eitt ár eftir af núverandi samningi sínum. (Bild)

Como hefur lagt fram tilboð í að fá ítalska framherjann Moise Kean (26). Félagið vill fá hann frá Fiorentina á láni en með kaupskyldu. Heildarverðmæti samningsins gæti numið um 25 milljónum punda. (La Gazzetta dello Sport)

Leeds gefur Joel Piroe (27) leyfi til að fara til West Ham í læknisskoðun. (Sky Sports)

AC Milan hefur náð samkomulagi um kaup á belgíska kantmanninum Diego Moreira (22) frá Strasbourg fyrir 34 milljónir punda. (Corriere dello Sport)

Sao Paulo og West Ham eru meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á enska framherjanum Jamie Vardy (39), sem er án félags. (Talksport)
Kom frá Wolves fyrir tveimur árum.

Kom frá Wolves fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes.

Bruno Fernandes.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool vill sækja Barcola.

Liverpool vill sækja Barcola.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.