Fotbolti.net
18.08.26 - 14:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Grímsi útskýrir „sussið" - „Þegar menn bulla þá svara ég fyrir mig"

Skoraði tvö mörk í gær.

Skoraði tvö mörk í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sitt áttunda og níunda mark í Bestu deildinni þegar hann skoraði tvö mörk fyrir KA gegn Val í gær. Hallgrímur skoraði annað og fjórða mark liðsins í leik sem endaði með 4-4 jafntefli. Mörkin má sjá neðst.

Hallgrímur skoraði fjórða mark KA eftir 78 mínútna leik og kom KA í 3-4. Fagnið hans vakti athygli því hann virtist sussa í átt að stúkunni og frekar KA mönnum heldur en stuðningsmönnum Vals.

Í Innkastinu voru menn að velta fagninu fyrir sér og furðuðu sig á því. Fótbolti.net ræddi við Grímsa, eins og hann er oftast kallaður, um fagnið.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
„Þessu var nú ekki beint að einhverjum hópi fólks og ekki KA fólkinu sem studdi frábærlega við okkur í gær í stúkunni," segir Grímsi.

„Ég fékk senda klippu úr þætti hjá ykkur (Innkastinu á Fótbolta.net) eftir Keflavíkur leikinn þar sem ákveðinn aðili var að tala um að aldurinn væri farinn að segja til sín hjá mér."

„Ég ákvað því aðeins að svara honum, inn á vellinum og svo í fagninu. Það fer almennt fátt í taugarnar mér, og ég hlusta á alla gagnrýni þegar hún á rétt á sér, tek henni og er fyrstur til að gagnrýna mig. En þegar menn bulla þá svara ég fyrir mig. Það eru tilfinningar þegar maður skorar og þá bera þær mann oft ofurliði."

„En því miður skilaði markið ekki sigri, það er það sem skiptir öllu máli, að sækja sigra og stig. Frammistaðan í gær var ekki fullkomin en hún var fín og allt annað en við höfum gert í síðustu leikjum. Það er eitthvað sem við getum tekið með okkur í lokasprettinn og farið að sækja fleiri stig,"
segir Hallgrímur sem er langmarkahæsti leikmaður KA í sumar og markahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Hann er 36 ára og hefur skorað níu mörk eða fleiri í deildinni og skoraði þrettán mörk á síðasta tímabili. Fyrir leikinn í gær hafði hann ekki skorað í fjórum leikjum í röð.
Horfir í 100 mörkin - „Finnst vera fullmiklir aldursfordómar í íslenskum fótbolta"
TENGT EFNI

Horfir í 100 mörkin - „Finnst vera fullmiklir aldursfordómar í íslenskum fótbolta"


Leikurinn gegn Keflavík var þarsíðasti leikur KA fyrir leikinn í gær. Sá leikur tapaðist 3-0 í Keflavík. Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA, var gestur í Innkastinu og sagði eftirfarandi:

„Hallgrímur Mar komst í stöður en klúðraði þeim. Mér líður svolítið eins og aldurinn sé farinn að segja til sín. Hann er ekki að ná að vera þessi stórstjarna í sóknarleik KA eins og hann hefur verið síðustu ár."

Gaf Grímsa sætið sitt í fluginu suður
Fagnið eftir fyrra mark Grímsa vakti einnig athygli því hann hljóp að varamannabekknum eftir að hafa skorað með skoti fyrir utan teig. Hallgrímur benti á liðsfélaga sinn á bekknum og fagnaði með honum.

„Ég fagnaði með Viktori Breka. Hann krafðist þess að ég tæki sætið hans í fluginu suður í leikinn. Hann sat í sæti 1A og þegar ég kom inn í vél bauð hann mér að skipta um sæti og eiginlega bara krafðist þess. Hann sagði að maður sem hefur spilað 20 ár í KA ætti frekar að sitja þarna en gutti úr 2. flokki. Mér fannst það fallega gert hjá honum og ákvað því að fara til hans og fagna markinu með honum," segir Grímsi.

KA situr í 11. sæti Bestu deildarinnar þegar þrír leikir eru eftir af fram að tvískiptingu.

Næstu leikir KA
sunnudagur 23. ágúst
17:00 KA-KR (Greifavöllurinn)

sunnudagur 30. ágúst
17:00 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)

sunnudagur 6. september
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)

Eftir þetta augnablik hljóp Hallgrímur í átt að stúkunni á Hlíðarenda og setti fingur fyrir framan munninn á sér eins og hann væri að sussa.

Eftir þetta augnablik hljóp Hallgrímur í átt að stúkunni á Hlíðarenda og setti fingur fyrir framan munninn á sér eins og hann væri að sussa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Faðmaði Viktor Breka eftir fyrra markið.

Faðmaði Viktor Breka eftir fyrra markið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Smá Cunha í kjölfarið.

Smá Cunha í kjölfarið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grímsi útskýrir „sussið" - „Þegar menn bulla þá svara ég fyrir mig"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frammistaðan í gær var ekki fullkomin en hún var fín og allt annað en við höfum gert í síðustu leikjum. Það er eitthvað sem við getum tekið með okkur í lokasprettinn og farið að sækja fleiri stig

Frammistaðan í gær var ekki fullkomin en hún var fín og allt annað en við höfum gert í síðustu leikjum. Það er eitthvað sem við getum tekið með okkur í lokasprettinn og farið að sækja fleiri stig

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.