18.08.26 - 10:40
Kári Snorrason
Haddi hvetur fjölmiðla til að gefa Djuric frið

Ónotaður varamaður í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur biður fjölmiðla um að gefa Djuric frið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lagt upp þrjú mörk í átján leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ónotaður varamaður í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel Dejan Djuric var sterklega orðaður frá KA undir lok gluggans. Fótbolti.net greindi frá því að hann hafði verið mættur á höfuðborgarsvæðið og gæti yfirgefið KA.
Hann gekk til liðs við KA fyrir tímabil og var keyptur dýrum dómi frá króatíska félaginu NK Istra. Gengi hans hefur verið undir væntingum á tímabilinu og var hann til að mynda ónotaður varamaður í leik KA gegn Val í gær.
Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson eftir leikinn í gær og spurði hann út í hvort Danijel hefði verið nálægt því að yfirgefa félagið.

TENGT EFNI
Djuric á förum frá KA? - Mögulegir áfangastaðir
„Ég get staðfest að hann hafi farið í bæinn, var með mömmu sinni og pabba. Hann var ekki að fara neitt og fór ekki neitt - er bara hjá okkur. Það er ekkert launungamál að þetta hefur kannski ekki alveg gengið eins og hann vonaðist til,“ segir Hallgrímur og heldur áfram.
„Hann er að vinna í sínum málum og við erum í mjög góðum samskiptum. Ég hvet bara fjölmiðla til þess að gefa honum smá frið, smá andrými. Það er mikið búið að höggva í hann. Þetta er ungur strákur og hann er að vinna í sínum málum.“
„Við erum að hjálpa honum, þjálfararnir, KA og foreldrar hans. Það eru allir á bakvið hann. Hann hefur áður skemmt áhorfendum og hann mun gera það aftur. Stundum þurfa ungir menn smá frið til þess að vinna í sínum málum og ég bið um að þið virðið það,“ segir Hallgrímur að lokum.