18.08.26 - 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Openda og Greenwood skoruðu
Allt jafnt í leikjum kvöldsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Aðsend

Mynd: EPA
Það fóru þrír leikir fram í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og lauk þeim öllum með jafnteflum.
Stærsti leikurinn fór fram í Tyrklandi þar sem Fenerbahce og Lyon áttust við í jöfnum leik og urðu lokatölur 1-1.
Loïs Openda kom Lyon yfir undir lok fyrri hálfleiks og jafnaði Mason Greenwood metin í upphafi síðari hálfleiks.
Liðin mætast í seinni leiknum í Lyon á miðvikudaginn í næstu viku.
Á sama tíma gerði Dinamo Zagreb 2-2 jafntefli við norska stórveldið Viking, en Amin Cosic var ekki með í hóp vegna meiðsla.
Heimamenn byrjuðu mun betur í Zagreb og komust í verðskuldaða tveggja marka forystu, en gestirnir svöruðu fyrir sig svo staðan var jöfn eftir 45 mínútur. Viking fékk lítið af færum en nýtti þau afar vel.
Síðari hálfleikurinn var afar lokaður. Norðmennirnir vörðust gífurlega vel og náðu að tryggja sér jafntefli fyrir heimaleikinn í næstu viku.
Levski Sofia gerði að lokum markalaust jafntefli við AEK frá Aþenu.
Fenerbahce 1 - 1 Lyon
0-1 Lois Openda ('40 )
1-1 Mason Greenwood ('47 )
Dinamo Zagreb 2 - 2 Viking
1-0 Dion Beljo ('6 )
2-0 Mateo Lisica ('10 )
2-1 Peter Christiansen ('26 )
2-2 Zlatko Tripic ('39 )
Levski 0 - 0 AEK