18.08.26 - 23:14
Ívan Guðjón Baldursson
Napoli spyrst fyrir um Zirkzee og Jackson
Juventus og Aston Villa einnig áhugasöm

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska stórveldið Napoli er búið að spyrjast fyrir um framherjana Joshua Zirkzee og Nicolas Jackson sem eru samningsbundnir Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
Hvorugur þeirra er með fast byrjunarliðssæti hjá sínu félagsliði og er Napoli í leit að framherja til að berjast við Rasmus Höjlund um byrjuarliðssæti.
Lorenzo Lucca og Giovane eru einnig samningsbundnir Napoli og gæti verið að félagið reyni að selja annan hvorn þeirra eða lána út, ásamt Walid Cheddira.
Talið er að Man Utd og Chelsea séu reiðubúin til að hlusta á tilboð í framherjana sína. Rauðu djöflarnir eru sagðir vilja 35 milljónir punda fyrir Zirkzee, á meðan Chelsea vill 65 milljónir fyrir Jackson.
Napoli hefur einnig verið orðað við Gabriel Jesus hjá Arsenal, sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi og kostar um 20 milljónir.
Napoli getur búist við baráttu frá Aston Villa og Juventus um framherjana eftirsóttu. Villa þarf nýjan framherja ef Ollie Watkins verður seldur til Al-Hilal og þá hefur Juve sýnt Zirkzee mikinn áhuga í sumar.