18.08.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Nefna sex sem gætu keppt við Haaland um gullskóinn

Erling Haaland er alvöru markavél.

Mynd: EPA

Erling Haaland er alvöru markavél.

Mynd: EPA
Erling Haaland sóknarmaður Manchester City hefur unnið gullskóinn sem markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar í þremur af fjórum tímabilum sínum.
Þessi 26 ára leikmaður skoraði sjö mörk fyrir Noreg á HM í sumar og er svo sannarlega líklegastur til að taka gullskóinn á komandi tímabili.
En hverjir gætu veitt honum samkeppni? Enska deildin hefst á föstudag og BBC nefnir sex leikmenn sem eru líklegastir til að keppa við Haaland um markakóngstitilinn.

Alexander Isak (Liverpool)
Meiddur stóran hluta síðasta tímabils en hann tók silfurskóinn tímabilið 2024-25.

Igor Thiago (Brentford)
Þessi 25 ára leikmaður skoraði 22 mörk á sínu fyrsta heila tímabili á Englandi og tók silfurskóinn.

Joao Pedro (Chelsea)
Vonast til að byggja ofan á þau 15 mörk sem hann skoraði á síðasta tímabili.

Sænski markaskorarinn var með 14 deildarmörk á síðasta tímabili og 21 mark alls. Fjórtán af heildarmörkunum komu eftir áramót sem sýnir að hann var að aðlagast.

Ollie Watkins (Aston Villa)
Með sextán mörk á síðasta tímabili en þarf að bæta vel ofan á það til að eiga möguleika á gullskónum.

Benjamin Sesko (Man Utd)
Gaf í eftir að Michael Carrick tók við á síðasta tímabili. Er aðeins 23 ára og kemur í hörkustandi inn í nýtt tímabil.