Fotbolti.net
18.08.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Rodri fær treyju númer 16 hjá Fermín

Fermín López fær sjöuna frá Ferran Torres

Rodri fær treyju númer 16 hjá Fermín
Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Rodri er orðinn leikmaður Barcelona eftir sjö ár með Manchester City.
Rodri kynntur hjá Barcelona (Staðfest)
TENGT EFNI

Rodri kynntur hjá Barcelona (Staðfest)

Hann bað sérstaklega um að fá treyju númer 16 hjá Barca og tókst að sannfæra samlanda sinn Fermín López að gefa sér treyjunúmerið.

Rodri klæddist treyju númer 16 hjá Man City, Villarreal og með spænska landsliðinu. Hann var númer 14 hjá Atlético Madrid tímabilið 2018-19.

Fermín hefur klæðst treyju númer 16 síðustu þrjú keppnistímabil en hann fær sjöuna sem Ferran Torres skilur eftir auða með félagaskiptum sínum til Paris Saint-Germain.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.