Fotbolti.net
18.08.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Scholes sviptur ökuréttindum í hálft ár

Scholes sviptur ökuréttindum í hálft ár
Canon

Mynd: EPA

Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir að verið gripinn fyrir hraðakstur tvívegis á tveimur dögum.

Hann var síðan ákærður fyrir að hafa ekki svarað tveimur bréfum frá lögreglu þar sem beðið var um staðfestingu á því að hann hefði verið ökumaðurinn sem ók of hratt.
Dæmt var í málunum í síðustu viku og Scholes missti ökuréttindin í sex mánuði.

Scholes vann ensku úrvalsdeildina ellefu sinnum og Meistaradeildina tvívegis með Manchester United. Hann starfar í dag sem sérfræðingur í fjölmiðlaumfjöllun um boltann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.