Fotbolti.net
18.08.26 - 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segja Liverpool hafa náð samkomulagi við Mbaye

Segja Liverpool hafa náð samkomulagi við Mbaye
Canon

Mynd: EPA

Franski miðillinn RMC Sport greinir frá því að Liverpool hafi náð samkomulagi við Ibrahim Mbaye sem er vængmaður PSG.

Mbaye, sem var einnig skotmark Leverkusen, er samkvæmt franska miðlinum búinn að ná samkomulagi um fimm ára samning.
Mbaye er 18 ára og skoraði þrjú mörk í 29 leikjum á síðasta tímabili.

Sagt er að PSG vilji fá á bilinu 40-50 milljónir evra fyrir Mbaye sem hefur spilað 15 landsleiki fyrir Senegal og skorað í þeim fjögur mörk.

Liverpool hefur verið með augastað á Bradley Barcola, samherja Mbaye hjá PSG, en Evrópumeistararnir vilja fá mjög mikið fyrir Barcola og óvíst hvort Liverpool sé til í að greiða yfir 130 milljónir evra fyrir Frakkann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.