Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 5. sæti

18.08.26

Spáin fyrir enska - 5. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

VIð höldum áfram að opinbera hvar liðin í ensku úrvalsdeildinni enduðu í sérstakri spá fréttafólks Fótbolta.net en í fimmta sæti er Chelsea.
Chelsea kemur inn í tímabilið með Xabi Alonso við stjórnvölinn. Alonso er fyrsti 'stjórinn' sem BlueCo eigendurnir hafa ráðið og gefur starfstitillinn fyrirheit um að Alonso fái mikil völd. Koma Spánverjans hefur strax gefið stuðningsmönnum á Stamford Bridge nýja von eftir tímabil þar sem Chelsea vann aðeins jafn marga deildarleiki og þeir töpuðu.

Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann
TENGT EFNI

Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann



Það gæti reynst Chelsea mikill kostur að vera ekki í Evrópukeppni á þessu tímabili. Alonso fær þar með meiri tíma á æfingasvæðinu til að koma sínum hugmyndum til skila og innleiða 3-4-3 leikkerfið sem skilaði honum frábærum árangri með Bayer Leverkusen. Með níu önnur lið úr ensku úrvalsdeildinni í Evrópukeppnum verður álagið minna á Chelsea og það gæti skipt sköpum í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Chelsea verður að stefna á Meistaradeildina. Hópurinn er enn ungur en mikil reynsla hefur bæst við, og möguleikarnir eru miklir. Chelsea er lið sem erfitt er að spá fyrir um. Alonso hefur nú tækifæri til að byggja liðið í kringum sínar eigin hugmyndir og með minni truflun en hjá helstu keppinautunum gæti hann nýtt tímabilið til að koma Chelsea aftur á meðal þeirra bestu. Meistaradeildarsæti ætti að vera lágmarkið, en það er alls ekki útilokað að Alonso og Chelsea blandi sér í toppbaráttuna.
Spáin fyrir enska - 5. sæti

Mynd: EPA

Stjórinn: Xabi Alonso gerði Bayer Leverkusen að einu mest spennandi liði Evrópu. Tíminn hjá Real Madrid varð hins vegar mun skemmri en búist var við og hann var látinn fara eftir aðeins 233 daga í starfi. Nú fær hann tækifæri til að sanna sig á ný hjá Chelsea. Hann vill spila af mikilli ákefð og pressa andstæðinginn hátt, en það verður töluverð breyting fyrir leikmannahóp sem skorti einmitt orku og hlaupagetu á síðasta tímabili. Chelsea var eitt af þeim liðum sem hljóp minnst í úrvalsdeildinni og því gæti leikstíll Alonso, sem er fyrrum leikmaður Liverpool, reynst leikmönnum liðsins töluverð áskorun í upphafi.

Leikmannaglugginn: Eins og áður þá hefur verið mikið að gera hjá Chelsea í sumar. Þeir hafa sótt meiri reynslu en áður og er það merki um breytta stefnu með innkomu Alonso. Chelsea bætti líka félagsmet sitt með því að kaupa Morgan Rogers frá Aston Villa.

Komnir:
Morgan Rogers frá Aston Villa - 117 milljónir punda
Maxence Lacroix frá Crystal Palace - 52 milljónir punda
Marco Palestra frá Atalanta - 47 milljónir punda
Geovany Quenda frá Sporting Lissabon - 40 milljónir punda
Valentín Barco frá Strasbourg - 34 milljónir punda
Emmanuel Emegha frá Strasbourg - 21,6 milljónir punda
Pep Chavarría frá Rayo Vallecano - 16,3 milljónir punda
Danny Welbeck frá Brighton - 5 milljónir punda
Jordan Henderson frá Brentford - Á frjálsri sölu

Farnir:
Marc Cucurella til Real Madrid - 52 milljónir punda
Andrey Santos til Manchester United - 50 milljónir punda
Trevoh Chalobah til Como - 25,7 milljónir punda
Tyrique George til Everton - 18 milljónir punda
Jimmy-Jay Morgan til West Brom - 4 milljónir punda
Dastan Satpayev til Burnley - Á láni
Filip Jörgensen til Strasbourg - Á láni
Alejandro Garnacho til Aston Villa - Á láni
Jesse Derry til Sporting Lissabon - Á láni
Spáin fyrir enska - 5. sæti

Mynd: EPA

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Cole Palmer
Það voru vissulega vonbrigði fyrir Palmer að missa af HM, en stuðningsmenn Chelsea fögnuðu því líklega. Hann fékk langþráð tækifæri til að hvílast almennilega í sumar og kemur inn í tímabilið í toppstandi. Palmer þarf að reyna að finna aftur þann takt sem hann var í tímabilið 2023/24 og ef það gerist, þá eru talsvert miklar líkur á því að Chelsea eigi mjög gott tímabil.

Gaman að fylgjast með: Morgan Rogers
Keyptur á 117 milljónir punda sem er enginn smá verðmiði. Hann er dýrasti enski fótboltamaður sögunnar og næst dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á eftir Alexander Isak. Með svona verðmiða verður hrikalega áhugavert að sjá hvernig Rogers stendur sig. Það verða gerðar kröfur á hann að skila mörkum og stoðsendingum.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Það er erfitt að sjá Chelsea enda ekki aftur í Evrópusæti þar sem álagið verður ekki mikið miðað við keppinautana. Versta mögulega niðurstaðan er því líklega að fara í Sambandsdeildina, eða það ætti að vera þannig. Besta mögulega niðurstaðan fyrir Chelsea er að fara í alvöru titilbaráttu. Þeir eru með gæðin í það, en þá þarf allt að ganga upp.
Spáin fyrir enska - 5. sæti

Mynd: Chelsea

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Chelsea, 222 stig
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 5. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.