18.08.26 - 23:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spiluðu við Árborg í Selfosstreyjum
Litirnir voru alltof svipaðir

Benjamín Óli Ólafsson skoraði tvennu fyrir Árborg í þægilegum sigri.

Mynd: Guðmundur Karl Sigurdórsson

Árborg tók á móti ÍH í 4. deild karla fyrir helgi og vann auðveldan 4-0 sigur.
Það vakti athygli að gestirnir frá Hafnarfirði mættu ekki til leiks í sínum eigin búningum, heldur í treyjum frá UMF Selfoss.
Vandamálið var að aðal- og varabúningar ÍH eru taldir vera alltof líkir hvítri treyju Árborgar sem gæti alið á ruglingi innan vallar.
Aðaltreyja ÍH er ljósblá á litin og varatreyjan hvít og því var gripið á það ráð að fá vínrauðar treyjur lánaðar frá Selfyssingum.
Selfyssingar tóku vel í það og var afar áhugavert að sjá ÍH spila í merktum Selfosstreyjum.
Árborg situr í þriðja sæti 4. deildar, fimm stigum á eftir Hamri þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.
ÍH er í fallbaráttu með 10 stig eftir 14 umferðir.