Fotbolti.net
18.08.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Sú besta í 15. umferð framlengir við Þór/KA

Lék í 2. deild í fyrra

Sú besta í 15. umferð framlengir við Þór/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hildur Anna Birgisdóttir skrifaði fyrr í ágúst undir framlengingu á samningi sínum við Þór/KA og verður því hjá félaginu næstu árin.
Sterkust í 15. umferð - Var í 2. deild í fyrra
TENGT EFNI

Sterkust í 15. umferð - Var í 2. deild í fyrra

Samningurinn gildir út tímabilið 2028 og fagnaði hún undirskriftinni með frábærri frammistöðu í þriggja marka sigri gegn Víkingi í Fossvogi á dögunum.

Hildur Anna er fædd 2007 og hefur verið í vaxandi hlutverki með liðinu það sem af er tímabils, en hún lék á láni með Völsungi í 2. deild í fyrra.

Hildur er miðjumaður með góðan leikskilning og mikinn baráttuvilja. Hún er uppalin hjá Þór/KA og hefur bæði starfað sem þjálfari í yngri flokkum félagsins og við dómgæslu.

Sú besta í 15. umferð framlengir við Þór/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.