18.08.26 - 14:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir leikir í Bestu spilaðir í Miðgarði? - „Lítum ekki á það sem ákjósanlega lausn"

Áætlað að spilað verði í Miðgarði á fimmtudag og sunnudag.

Mynd: Aðsend

Sýn er með sýningarréttinn á Bestu deildunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiríkur Stefán.

Mynd: Sýn

Stjarnan og Breiðablik mætast á fimmtudag.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eins og Fótbolti.net sagði frá í síðustu viku eru framkvæmdir á Samsungvellinum í Garðabæ, verið er að skipta um gervigras á vellinum, og því ekki hægt að spila á vellinum.
Karla- og kvennalið Stjörnunnar eiga heimaleiki á næstu dögum. Kvennaliðið tekur á móti Breiðabliki á fimmtudag og á sunnudag koma Þórsarar í heimsókn í Bestu deild karla. Á heimasíðu KSÍ eru leikirnir enn skráðir þannig að þeir fari fram á Samsungvellinum en munu, samkvæmt upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið, fara fram inni í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsi Garðbæinga. Völlurinn í Miðgarði uppfylir ekki allar kröfur KSÍ um leikvelli í efstu deild en Stjarnan hefur sótt um undanþágu á þeim kröfum.
„Stjarnan hefur sótt um að spila í Miðgarði og við erum að afgreiða það mál núna. Það eru menn að störfum í Miðgarði og þegar ég veit niðurstöðuna úr því þá munum við samþykkja beiðnina eða hafna henni," segir Birkir Sveinsson sem er mótastjóri KSÍ.
Fótbolti.net ræddi við Eirík Stefán Ásgeirsson sem er forstöðumaður íþróttadeildar Sýnar, en Sýn er með sýningarréttinn á Bestu deildum karla og kvenna.

TENGT EFNI
Framkvæmdir í Garðabæ - Stjarnan stefnir á að spila næstu leiki í Miðgarði
„Almennt séð þá að sjálfsögðu skoðum við allt í samstarfi við ÍTF fyrst og fremst, KSÍ og félögin auðvitað líka, en ÍTF er okkar samstarfsaðili. Það er alveg ljóst að við lítum ekki á það sem ákjósanlega lausn að spila leiki í Bestu deildunum á ósamþykktum völlum. Okkur finnst það ekki standast þær kröfur sem við gerum til Bestu deildarinnar um aðstöðu fyrir okkar starfsfólk og gæði í útsendingum. Við viljum að það sé spilað á völlum sem eru samþykktir sem leikvellir í efstu deild."
„Að því sögðu erum við að sjálfsögðu til í, og höfum sýnt samstarfsvilja með öllum sem hafa þurft að leysa vandamál eins og Stjarnan er að lenda í núna með gervigrasið, við höfum alveg skilning á því. Ef það þarf að færa leiki af því völlur er óleikhæfur þá er það almennt okkar beiðni til ÍTF og KSÍ að leikurinn fari fram á samþykktum velli þar sem öll aðstaða er fyrir hendi fyrir okkar starfsfólk."
Ef KSÍ ákveður að leikirnir verði spilaðir í Miðgarði, þá munuð þið ekki setja ykkur formlega upp á móti því?
„Nei, við vinnum þetta ekki þannig. Við tökum samtölin, það getur vel verið að við segjum við Birki að þetta sé ekki okkar fyrsti kostur. Við reynum að gera þetta í samvinnu, en látum samt vita að við teljum að það sé eðlilegt að leikir í Bestu deildum karla og kvenna fari fram á samþykktum völlum."
Sýn hefur sýnt frá mörgum leikjum sem spilaðir hafa verið innanhúss.
„Við sjáum öll að þetta er verri sjónvarpsútsending, það er alveg augljóst. Það þarf að vera rosalega sterk lýsing og hátt til lofts til að koma ágætlega út."
„Ef mótanefnd KSÍ ákveður að þetta verði lausnin, þá er það bara þannig. Við munum ekki grípa til einhverra aðgerða."
Segjum sem svo að í ljós kemur á fimmtudag, þegar sýnt verður frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks, að þetta sé ekki viðunandi útsending. Er möguleiki á því að þið setjið fótinn niður og krefjist þess að seinni leikurinn verði ekki spilaður í Miðgarði?
„Við höfum ekki lent í því áður að þurfa að gera það. Ef að okkar tæknifólk lætur vita af því að ekki sé hægt að mynda leik inni í Miðgarði þá hef ég trú á því að það verði unnið með þá lausn frekar en að KSÍ krefjist þess að það verði samt spilað inni. Samskiptin okkar hafa ekki verið þannig, við reynum að vinna þetta þannig að ásættanlegasta lausnin náist," segir Eiríkur.