Fotbolti.net
18.08.26 - 12:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Watkins með samkomulag við Al-Hilal

Watkins með samkomulag við Al-Hilal
Canon

Mynd: EPA

Enski landsliðsframherjinn Ollie Watkins er samkvæmt TEAMtalk og fleiri miðlum búinn að ná samkomulagi við Al-Hilal í Sádi-Arabíu.

Til þess að félagaskiptin geti átt sér stað þá þurfa hins vegar Aston Villa og Al-Hilal að ná samkomulagi um kaupverð.
Al-Hilal hefur verið að skoða markaðinn og var félagið einnig orðað við Harry Kane og Victor Osimhen þar sem Karim Benzema er líklega á förum frá félaginu.

Watkins er þrítugur og er með munnlegt samkomulag við Al-Hilal um samning hjá félaginu.

Watkins er markahæsti leikmaður í sögu Aston Villa í úrvalsdeildinni. Hann hefur verið hjá Villa síðan 2020 en hann kom frá Brentford. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Villa og gæti kostað um 38 milljónir punda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.