18.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
WBA í viðræðum við Man Utd um Collyer

Mynd: EPA

Mynd: EPA
West Brom er í viðræðum við Manchester United um kaup á miðjumanninum Toby Collyer samkvæmt heimildum talkSPORT.
Collyer var á láni hjá WBA fyrri hluta síðasta tímabils, byrjaði þrjá leiki og kom alls við sögu í tólf leikjum, en kálfameiðsli settu strik í reikninginn. Hann fór svo til Hull City seinni hlutann en lék einungis fimm leiki þar fyrir liðið sem vann umspilið í B-deildinni.

WBA er í leit að manni til að fylla í skarðið sem Alex Mowatt skilur eftir sig en hann fór til Derby í síðustu viku.
Collyer er 22 ára enskur miðjumaður sem kom til Man Utd frá Brighton 2022. Han á að baki 10 leiki fyrir yngri landslið Englands. Alls hefur hann spilal 13 leiki fyrir aðallið United í öllum keppnum.