Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. september 2020 10:21
Magnús Már Einarsson
Arsenal reynir við markvörð Brentford - Tilboði hafnað
David Raya.
David Raya.
Mynd: Getty Images
Brentford hefur hafnað tíu milljóna punda tilboði frá Arsenal í markvörðinn David Raya en The Daily Telegraph segir frá þessu í dag. Arsenal seldi í vikunni markvörðinn Emiliano Martinez til Aston Villa.

Arsenal er að kaupa íslenska markvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson frá Dijon á 1,6 milljón punda og eins og staðan er verður hann varamarkvörður liðsins.

Ef Arsenal myndi fá Raya gæti staða Rúnars hins vegar breyst.

Hins vegar vill Brentford einungis selja Raya með þeim skilmálum að hann komi aftur til félagsins á láni út þetta tímabil.

Brentford tapaði í umspili um sæti í úrvalsdeildinni í vor en liðið ætlar að gera aðra atlögu að því að komast upp á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner