Fotbolti.net
18.09.26 - 19:16
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Sjö mörk í Vestmannaeyjum

Besta deild kvenna: Sjö mörk í Vestmannaeyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV 4 - 3 Þróttur R.
0-1 Katherine Amanda Cousins ('19)
1-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('30)
2-1 Olga Sevcova ('40)
3-1 Fridrikka Marie Clementsen ('45)
3-2 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('57)
4-2 Allison Grace Lowrey ('80)
4-3 Björgey Njála Andreudóttir ('91)
Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 3 Þróttur R.
ÍBV og Þróttur áttust við í seinni leik dagsins í efri hluta Bestu deildar kvenna og úr varð gífurlega skemmtilegur slagur sem bauð upp á sjö mörk.

Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum og náði Katie Cousins forystunni fyrir gestina úr Laugardal eftir góða sókn. Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir slapp í gegn og gaf góðan bolta fyrir markið þar sem Katie var mætt.

Ágústa María Valtýsdóttir jafnaði fyrir heimakonur á 30. mínútu eftir góða hápressu. Ágústa nýtti sér klaufagang í vörn Þróttar til að vinna boltann, leika á Ninnu Björk Þorsteinsdóttur markvörð og skora svo í autt markið.

Olga Sevcova náði svo forystunni fyrir ÍBV eftir frábæran undirbúning frá Fridrikku Marie Clementsen. Olga gerði mjög vel að klára með að lyfta boltanum skemmtilega yfir Ninnu, fimm mínútum áður en Fridrikka skoraði sjálf eftir undirbúning frá Olgu. Olga og Fridrikka lögðu því upp fyrir hvor aðra og var staðan 3-1 í leikhlé.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir minnkaði muninn í síðari hálfleik eftir herfileg mistök Guðnýjar Geirsdóttur sem rauk úr marki heimakvenna og hitti ekki boltann. Bríet Fjóla skoraði í autt markið og hélst staðan 3-2 allt þar til á lokakaflanum.

Bríet átti skot í stöng en tókst ekki að jafna, þess í stað setti Allison Lowrey fjórða mark Eyjakvenna eftir frábæra fyrirgjöf frá Jessica Hinton.

Björgey Njála Andreudóttir minnkaði muninn fyrir gestina í uppbótartíma en nær komust Þróttarar ekki. Lokatölur 4-3.

ÍBV er í þriðja sæti eftir sigurinn, með 30 stig eftir 19 umferðir. Þróttur er með 23 stig.
Besta deild kvenna: Sjö mörk í Vestmannaeyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Sjö mörk í Vestmannaeyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Sjö mörk í Vestmannaeyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.