Fotbolti.net
18.09.26 - 18:13
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Brentford og Chelsea: Henderson og Welbeck byrja

Byrjunarlið Brentford og Chelsea: Henderson og Welbeck byrja
Canon

Mynd: Chelsea FC

Brentford og Chelsea eigast við í afar áhugaverðum Lundúnaslag og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Xabi Alonso þjálfari Chelsea gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu sem gerði óvænt jafntefli við nýliða Hull City um síðustu helgi.

Reynsluboltarnir Jordan Henderson og Danny Welbeck koma inn í byrjunarliðið ásamt nýju mönnunum Maxence Lacroix, Valentín Barco og Pep Chavarría. Henderson byrjar gegn sínum fyrrum liðsfélögum eftir að hafa reynst mikilvægur hlekkur fyrir Brentford á síðustu leiktíð.

Jorrel Hato, Romeo Lavia og Malo Gusto setjast á bekkinn en Joao Pedro og Reece James eru fjarverandi vegna meiðsla.

Keith Andrews þjálfari Brentford gerir tvær breytingar eftir jafntefli við Bournemouth um síðustu helgi. Michael Kayode kemur inn fyrir Aaron Hickey í hægri bakvörð og fer Mikkel Damsgaard inn á miðsvæðið í stað Mamadou Sangaré sem fær sér sæti með Hickey á bekknum.

Hákon Rafn Valdimarsson er ekki í hóp frekar en í miðri viku þegar Brentford heimsótti Reading í deildabikarnum. Ellery Balcombe varði mark liðsins og sat Caoimhín Kelleher á bekknum.

Brentford: Kelleher; Kayode, Ajer, Schuster, Lewis-Potter; Janelt, Yarmoliuk, Damsgaard; Anthony, Schade, Thiago
Varamenn: Balcombe, Hickey, Henry, Ouattara, Wilson, Carvalho, Sangare, Diouf, Frederick

Chelsea: Martinez; Fofana, Lacroix, Colwill; Neto, Henderson, Barco, Chavarria; Palmer, Rogers, Welbeck.
Varamenn: Penders, Acheampong, Gusto, Hato, Lavia, Nicoll-Jazuli, Gittens, Estevao, Quenda.
Byrjunarlið Brentford og Chelsea: Henderson og Welbeck byrja
Canon

Mynd: Chelsea

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle508
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Nott. Forest6-35
15Aston Villa6-55
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.