18.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
De la Fuente valdi fjóra til að fylla í skörðin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Luis de la Fuente er búinn að velja fyrsta landsliðshóp Spánverja eftir að hafa unnið heimsmeistaramótið í sumar.
Heimsmeistararnir spila fjóra leiki í löngu landsleikjahlé fyrir Þjóðadeildina, einu sinni við England og Tékkland og tvisvar við Króatíu.
De la Fuente gerir lítið af breytingum á hópnum sem varð heimsmeistari. Borja Iglesias og Gavi hafa verið að glíma við meiðsli og detta úr hópnum ásamt markverðinum Joan García sem er meiddur. Marcos Llorente lagði landsliðsskóna á hilluna og er því heldur ekki með.
Josep Martínez markvörður Inter, Dean Huijsen varnarmaður Real Madrid, Fermín López sóknartengiliður Barcelona og Roberto Fernández framherji Espanyol eru kallaðir upp í staðinn.

Vuelve el equipo de todo un país, vuelve la @SEFutbol.
— Selección Española Masculina de Fútbol (@SEFutbol) September 18, 2026
Luis de la Fuente ofrece la lista de convocados para los próximos partidos de la #NationsLeague.#VamosEspaña pic.twitter.com/e21FH1W5wj