Fotbolti.net
18.09.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Engin áform um að fá Wirtz aftur til Þýskalands

Florian Wirtz

Florian Wirtz

Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa engar fyrirætlanir um að reyna að fá Florian Wirtz frá Liverpool, að minnsta kosti ekki að svo stöddu. Þetta segir Christian Falk, sérfræðingur í málefnum Bayern, á X.
Liverpool keypti Wirtz frá Bayer Leverkusen fyrir 100 milljónir punda á síðasta ári, auk 16 milljóna í mögulegum árangurstengdum greiðslum. Óvíst er hversu mikið af þeirri upphæð hefur þegar fallið til.

Þýski landsliðsmaðurinn hefur ekki náð sömu hæðum hjá Liverpool og hann gerði með Leverkusen. Hann var lengi í gang á síðasta tímabili og átti ágætis kafla í byrjun nýs árs, en heilt yfir voru vonbrigðin töluverð, líkt og hjá nokkrum öðrum nýjum leikmönnum félagsins.

Byrjunin á þessu tímabili hefur heldur ekki verið sannfærandi og hafa sparkspekingar velt því upp hvort best væri fyrir Wirtz að snúa aftur heim til Þýskalands.

Bayern München reyndi að fá hann frá Leverkusen í fyrra en tapaði þeirri baráttu fyrir Liverpool. Wirtz er áfram ofarlega á óskalista Bayern, en félagið hefur engar fyrirætlanir um að reyna að fá hann á næstunni.

„Ef Florian Wirtz hefði einhvern tímann í framtíðinni áhuga á að snúa aftur í þýsku deildina þá væri Bayern München fyrsta félagið sem hann myndi ræða við. Hins vegar eru engar fyrirætlanir um það eins og staðan er núna,“ sagði Falk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.