18.09.26 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Fyrsti sigur nýliðanna

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Monza 2 - 1 Sassuolo
1-0 Gustavo Varela ('51 )
2-0 Gustavo Varela ('63 , víti)
2-1 Vasilije Adzic ('88 )
1-0 Gustavo Varela ('51 )
2-0 Gustavo Varela ('63 , víti)
2-1 Vasilije Adzic ('88 )
Nýliðar Monza tóku á móti Sassuolo í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild á Ítalíu og var staðan markalaus eftir skemmtilegan fyrri hálfleik. Sassuolo fékk bestu færin en tókst ekki að skora, á meðan heimamenn fengu einnig gott færi til að skora.
Portúgalinn efnilegi Gustavo Varela náði forystunni í upphafi síðari hálfleiks eftir skelfileg markmannsmistök hjá Arijanet Muric. Varela skallaði boltann beint á markið eftir hornspyrnu en Muric missti hann í netið á einstaklega klaufalegan hátt.
Hann tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu tólf mínútum síðar, sem var flautuð eftir hornspyrnu.
Gestirnir frá Sassuolo voru áfram hættulegri aðilinn en tókst ekki að minnka muninn fyrr en Vasilije Adzic kom inn af bekknum og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu undir lokin, en það dugði ekki til. Lokatölur 2-1.
Þetta er fyrsti sigur Monza á deildartímabilinu og er liðið með fjögur stig eftir fimm umferðir. Sassuolo er með sjö stig.