Fotbolti.net
18.09.26 - 19:37
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann Kristinn: Bikarmeistaratitillinn gjaldfelldur duglega

Auglýsing
Jóhann Kristinn: Bikarmeistaratitillinn gjaldfelldur duglega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar R. svaraði spurningum eftir 4-3 tap gegn ÍBV í efri hluta Bestu deildar kvenna í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 3 Þróttur R.
Það var mikið af mörkum í fjörugum leik en hvorugt lið er að keppast um neitt á þessum tímapunkti leiktíðarinnar. Bikarmeistararnir í liði Þróttar sigla lygnan sjó með 23 stig eftir 19 umferðir.

„Þetta var frekar jafn leikur en mér fannst við vera 'sloppy' í fyrri hálfleik. Við náðum inn einu góðu marki og síðustu fimmtán mínúturnar vorum við ólíkar sjálfum okkur, við gerðum klaufaleg mistök aftur og aftur og var refsað í nánast hvert einasta skipti," sagði Jóhann Kristinn eftir lokaflautið.

„Mér fannst við svara ágætlega í seinni hálfleik en við náðum aldrei að spila okkar leik almennilega. ÍBV voru flottar og þær eiga sigurinn skilið í dag."

Jóhann ræddi einnig um bikarmeistaratitilinn og skilur ekki hvers vegna meistararnir fá ekki þátttökurétt í Evrópu, en eins og staðan er í dag eru það einungis tvö efstu lið Bestu deildarinnar sem komast í Evrópukeppni.

„Þessi bikarmeistaratitill er gjaldfelldur duglega með að þú færð ekki neitt nema sömu milljónina og þú fékkst örugglega fyrir 30 árum. Mér finnst það lélegt, en það er okkur að kenna að við séum ekki að keppa við FH og Breiðablik í titilbaráttunni."

Hann viðurkennir að Þróttur mun nýta síðustu leiki tímabilsins til að gefa leikmönnum sem hafa lítið spilað í sumar fleiri mínútur.

Jón Óli um flóðljósin: Eins og maður sé í útlöndum
TENGT EFNI

Jón Óli um flóðljósin: Eins og maður sé í útlöndum

Jóhann Kristinn: Bikarmeistaratitillinn gjaldfelldur duglega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jóhann Kristinn: Bikarmeistaratitillinn gjaldfelldur duglega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.