18.09.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KR nýtir Krafta sína til góðs í stórleiknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar taka á móti Víkingum í Bestu deildinni á morgun, laugardag, 19. september klukkan 14:00 á Meistaravöllum og má segja að þetta sé einn stærsti leikur tímabilsins.
KR-ingar munu nýta Krafta sína til góðs og hvetja áhorfendur til að festa kaup á sérstökum KRaftsaðgöngumiða á leikinn. KRaftsaðgöngumiðinn er 1.500 krónum dýrari en venjulegur aðgöngumiði og mun allur ágóði renna óskertur til Krafts sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein.

Einnig verður hægt að styrkja Kraft með 1.500 króna framlagi án þess að kaupa aðgöngumiða á leikinn. Síðustu ár hefur KR látið sig góðgerðarfélög varða og styrkt hin ýmsu félög. Í ár er komið að Krafti.
Magnús Orri Schram, formaður knattspyrnudeildar KR:
„Það er ánægjulegt að við KR-ingar getum stutt við öflugt starf Krafts. Kraftur er mikilvægt félag sem grípur ungt fólk með krabbamein. Við hvetjum sem flesta til að fjölmenna á leikinn á laugardag og sýna kraft í verki með því að kaupa Kraftstaðgöngumiða”
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein á aldrinum 18-40 ára og aðstandendur 18 ára og eldri. Árlega greinast um 90 ungir einstaklingar með krabbamein á Íslandi. Kraftur er klúbburinn sem enginn vill vera í en félagið leggur sig fram við að styðja við félagsfólk og létta því lífið með fjölbreyttri þjónustu á borð við fjárhagslegan- og félagslegan stuðning. Félagið er alfarið rekið fyrir velvild almennings og fyrirtækja í landinu.
Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs og kynningarstjóri Krafts:
„Við erum einstaklega þakklát KR fyrir að nýta sinn stóra vettvang til að vekja athygli á Krafti og styðja við starf okkar í leiðinni. Það er sérstaklega gaman að vera KR-ingur í dag og fylgjast með uppgangi liðsins og svo gleður það enn meira þegar svona stór félög axla samfélagslega ábyrgð á borð við áðurnefndan styrktarleik á laugardag. Við hvetjum sem flest til að fjölmenna á stærsta leik sumarsins og láta gott af sér leiða í leiðinni.”
Fótboltaáhugafólki gefst tækifæri til að styrkja félagið með kaupum á sérstökum Kraftsaðgöngumiða og einnig verður varningur frá Krafti til sölu á leiknum sjálfum. Miðasala hefst næstkomandi miðvikudag á stubb.is og einnig verður hægt að kaupa aðgöngumiða við inngang á leikdag. Leikurinn hefst kl. 14:00, laugardaginn 19. september.