18.09.26 - 22:05
Sölvi Haraldsson
Talar um augljósa vítaspyrnu: Nokkrar skrítnar ákvarðanir hérna
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Hvað á maður að segja? Mér fannst við vera með yfirhöndina með boltann sem maður bjóst svo sem við. Við sköpum margar góðar stöður en það vantaði lítið upp á hjá okkur í kvöld. Selfoss vel að þessu komið og mjög flottir.“ sagði Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, eftir 3-1 tap á Laugardalsvell í úrslitaleik Gatorade bikarsins gegn Selfoss í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 Haukar
Haukarnir vildu ólmir fá vítaspyrnu rétt áður en Selfyssingar komast yfir í 2-1, hvernig sá Guðjón þetta?
„Þetta leit mjög augljóslega út fyrir að Siggi hafi verið togaður niður í teignum en þeir sjá eitthvað annað en við hinir þannig við lifum með því. Það voru nokkrar skrítnar ákvarðanir hérna. Við fáum tvö gul af fyrstu tveimur brotunum okkar, þeir toga okkur niður eftir að við vinnum hann í dauðafæri og fá ekkert. En dómarinn var mjög fínn en Selfoss gerði vel og er vel að þessu komið.“
Afhverju vann Selfoss Haukana í kvöld?
„Þeir voru bara klínískari í sínum færum, þeir eiga 3-4 skot á markið í leiknum og skora þrjú.“
Hvering metur Guðjón sumarið eftir svekkjandi tap hér í kvöld?
„Þetta er frábært sumar hjá okkur, vinnum alla bikarana nema þennan hérna. Vorum kannski fulldjarfir að spila hérna á föstudegi en áfram gakk, við komum sterkir inn á næsta ári og vinnum Selfoss þá.“