Fotbolti.net
18.09.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Valdi Ítalíu framyfir Brasilíu - Kayode fær loksins tækifæri

Valdi Ítalíu framyfir Brasilíu - Kayode fær loksins tækifæri
Canon

Mynd: EPA

Roberto Mancini er búinn að velja sinn fyrsta landsliðshóp eftir að hafa verið ráðinn sem landsliðsþjálfari Ítalíu í annað sinn á ferlinum.
Táningurinn Samuele Inácio, sem er uppalinn hjá Borussia Dortmund og fékk að skína undir lok síðustu leiktíðar, er í hópnum. Hann hefur því valið að spila fyrir Ítalíu frekar heldur en Brasilíu, verandi með tvöfalt ríkisfang.

Inácio er 18 ára fjölhæfur sóknartengiliður sem er fæddur á Ítalíu og hefur skorað 22 mörk í 43 leikjum fyrir yngri landsliðin. Hann á einn A-landsleik að baki, í vináttuleik gegn Lúxemborg, en í þessu landsleikjahléi mun hann koma við sögu keppnisleik.

Ítalía mætir Frakklandi, Belgíu og Tyrklandi í löngu landsleikjahlé. Ítalir spila tvisvar við Tyrki.

Úrvalsdeildarleikmennirnir Honest Ahanor, Riccardo Calafiori, Michael Kayode og Sandro Tonali eru í hópnum. Kayode gæti spilað sinn fyrsta landsleik en fyrrum landsliðsþjálfarinn Gennaro Gattuso var gagnrýndur fyrir að velja hann ekki.

Mancini velur afar breiðan landsliðshóp sem inniheldur 34 leikmenn og þar á meðal eru Mohamed Ali Zoma, Issa Doumbia og Alessandro Romano. Sá síðastnefndi er miðjumaður fæddur 2006 sem velur Ítalíu framyfir Sviss, eftir að hafa spilað 34 leiki fyrir yngri landslið Svisslendinga.

Valdi Ítalíu framyfir Brasilíu - Kayode fær loksins tækifæri
Canon

Mynd: Brentford

Valdi Ítalíu framyfir Brasilíu - Kayode fær loksins tækifæri
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.