Fotbolti.net
18.09.26 - 21:49
Sölvi Haraldsson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Viðar Örn: Leikmennirnir í hópnum myndu ekki beint segja það

Auglýsing
Viðar Örn: Leikmennirnir í hópnum myndu ekki beint segja það
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta var svolítið bras eftir 2-1, þetta var mjög kaflaskiptur leikur. Það má því segja að það var ótrúlega góð tilfinning að skora þarna undir blálokin. En eins og ég segi að þá var þetta erfiður leikur í dag, góður stuðningur og góðar aðstæður, bara yndislegt.“ sagði Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Selfoss, eftir 3-1 sigur á Haukum í úrslitaleik Gatorade bikarsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 Haukar
„Það var hrollur í okkur í byrjun. Snertingarnar voru lélegar og sendingarnar líka. Það var eins og markið róaði okkur niður, um leið og flæðið komst í gang hjá okkur vorum við góðir. Svo áttu þeir kafla líka í seinni hálfleik og svo framvegis en við gerðum þetta bara mjög vel.“ sagði Viðar þegar hann var spurður nánar út í upplifun hans á leiknum.

Það eru frábærar aðstæður á Laugardalsvelli og völlurinn lítur gífurlega vel út, hvernig fannst Viðari að spila á hybrid grasinu?

„Það var geggjað. Eins og þetta var hérna áður að þá er þetta bara 10/10 miðað við það. Mér finnst hann alveg frábær völlurinn.“

Hvernig metur Viðar sumarið þegar hann lítur um öxl?

„Kaflaskipt og svoleiðis en ef þú spyrð leikmennina í hópnum myndu þeir ekki beint segja það. Kannski var það þannig út á við. Við erum með ótrúlega marga unga stráka hérna sem eru með ótrúlega litla reynslu í meistaraflokki karla. Það eru fullt af erfiðum leikjum í 2. deildinni og það kom mér smá á óvart hvað þeir náði margir að vera erfiðir. Þegar það leið á tímabilið var þetta alveg frábært og að enda þetta svona er geggjað. Þessir strákar verða bara betri á næsta ári.“ sagði Viðar en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.