Fotbolti.net
18.09.26 - 22:15
Ívan Guðjón Baldursson

Yngstur í sögu Chelsea - Alonso nálgast slæmt met

Yngstur í sögu Chelsea - Alonso nálgast slæmt met
Canon

Mynd: EPA

Chelsea tapaði 3-0 gegn Brentford í úrvalsdeildarleik kvöldsins og kom sextán ára gamall Mahdi Nicoll-Jazuli inn af bekknum.
England: Brentford tók Chelsea í kennslustund
TENGT EFNI

England: Brentford tók Chelsea í kennslustund

Xabi Alonso skipti Nicoll-Jazuli inn fyrir Valentín Barco á 87. mínútu þegar Chelsea var þegar lent tveimu mörkum undir.

Nicoll-Jazuli er fyrsti leikmaðurinn fæddur árið 2010 til að spila í ensku úrvalsdeildinni og er jafnframt yngsti leikmaður í sögu Chelsea til að koma við sögu í deild þeirra bestu.

Eftir tapið er Chelsea með sjö stig eftir fimm umferðir og er liðið búið að fá 12 mörk á sig. Alonso varð með því aðeins sjötti þjálfari úrvalsdeildarsögunnar til að fá tvö mörk á sig í hverjum leik fyrstu fimm leikina við stjórnvölinn í deildinni.

Mick McCarthy, Sammy Lee, Terry Connor, Slavisa Jokanovic og Scott Parker afrekuðu þetta einnig. Alonso þarf að bæta varnarleikinn eftir landsleikjahlé ef hann vill ekki taka metið útaf fyrir sjálfan sig.

Einkunnir Brentford og Chelsea: Lacroix skúrkurinn
TENGT EFNI

Einkunnir Brentford og Chelsea: Lacroix skúrkurinn

Yngstur í sögu Chelsea - Alonso nálgast slæmt met
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.