18.09.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane velur Jacquet og Truffert í landsliðið

Mynd: EPA

Mynd: Liverpool

Mynd: EPA
Zinedine Zidane er tekinn við franska landsliðinu eftir HM og hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp.
Hann gerir ýmsar breytingar frá landsliðshópi Frakka sem tapaði gegn Spáni í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í sumar.
Maghnes Akliouche, Marcus Thuram, Malo Gusto og Lucas Digne eru meðal leikmanna sem detta úr hópnum ásamt Hernández bræðrunum Theo og Lucas. Aurélien Tchouaméni er ekki í hóp en hann er nýlega búinn að jafna sig eftir meiðsli, Eduardo Camavinga liðsfélagi hans hjá Real Madrid er valinn í staðinn. Þá er William Saliba ekki í hóp vegna meiðsla.
Adrien Truffert bakvörður Bournemouth tekur stöðu Digne í hópnum og gæti spilað sinn annan landsleik. Andy Diouf, afar fjölhæfur leikmaður Ítalíumeistara Inter, gæti spilað sinn fyrsta landsleik ásamt Jérémy Jacquet ungum miðverði Liverpool.
Lucas Da Cunha, leikmaður Como, gæti einnig spilað sinn fyrsta A-landsleik rétt eins og Esteban Lepaul sem hefur verið að gera frábæra hluti með Rennes og markvörðurinn ungi Guillaume Restes sem leikur fyrir uppeldisfélagið Toulouse. Kylian Mbappé er áfram fyrirliði.
Frakkar spila við Tyrkland og Ítalíu í Þjóðadeildinni í landsleikjahlénu, auk þess að spila tvo leiki gegn nágrönnum sínum frá Belgíu.

???? Zinédine Zidane a dévoilé sa première liste à la tête de l’Équipe de France ????????
— Equipe de France ?? (@equipedefrance) September 18, 2026
Premières convocations pour 5 nouveaux joueurs : Restes, Diouf, Jacquet, Da Cunha et Lepaul ????
???? RDV lundi pour le début du rassemblement, avec 4 matchs de Ligue des Nations au programme ! pic.twitter.com/bqdM7HTBCP

Mynd: Liverpool