Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. október 2020 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Lánsmaður frá Liverpool hetja Cardiff
Sheyi Ojo fagnar marki sínu.
Sheyi Ojo fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Preston NE 0 - 1 Cardiff City
0-1 Sheyi Ojo ('52 )

Cardiff vann góðan útisigur gegn Preston þegar liðin áttust við í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en fyrsta mark leiksins kom snemma í seinni hálfleik. Þá skoraði Sheyi Ojo eftir góða skyndisókn Cardiff.

Ojo er 23 ára gamall en hann er í láni hjá Cardiff frá enska stórliðinu Liverpool.

Mark hans reyndist eina mark leiksins og góður útisigur Cardiff niðurstaðan. Cardiff er í 12. sæti með sjö stig og Preston er í 18. sæti með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner