Spænska blaðið El Confidencial segir að Real Madrid sé tilbúið að selja sóknarmiðjumanninn Isco í janúarglugganum.
Þessi 28 ára leikmaður hefur bara aðeins byrjað þrjá leiki í La Liga á þessu tímabili og eru sögusagnir um að samband hans við Zinedine Zidane sé ekki gott.
Samningur Isco rennur út í lok næsta tímabils og Madrídarfélagið veit að það þarf að selja hann bráðlega til að fá almennilega upphæð fyrir hann.

Ensk úrvalsdeildarfélög, þar á meðal Arsenal og Everton, hafa verið orðuð við leikmanninn.
Isco hefur unnið tvo spænska meistaratitla og fjóra Meistaradeildartitla með Real Madrid síðan hann kom frá Malaga 2013. En hann hefur færst aftar í goggunarröðina og þar af leiðandi misst sæti sitt í spænska landsliðinu.
Athugasemdir