Miðvörðurinn ungi Rhys Williams spilaði ekki með U21 landsliði Englands gegn Albaníu í gær vegna meiðsla á mjöðm.
Hinn 19 ára gamli Rhys fór aftur til Liverpool þar sem hann mun fara í meðhöndlun næstu dagana.
Óvíst er hvort hann nái leiknum gegn Leicester á sunnudag vegna meiðslanna.
Hinn 19 ára gamli Rhys fór aftur til Liverpool þar sem hann mun fara í meðhöndlun næstu dagana.
Óvíst er hvort hann nái leiknum gegn Leicester á sunnudag vegna meiðslanna.
Mikil meiðsli eru í vörn Liverpool en Virgil van Dijk og Joe Gomez verða lengi frá keppni auk þess sem bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold verður frá næstu vikurnar.
Vinstri bakvörðurinn Andy Robertson hefur einnig verið að glíma við meiðsli sem og fyrirliðinn Jordan Henderson. Þá er Mohamed Salah með kórónuveiruna og frá keppni af þeim sökum.
Athugasemdir