Fotbolti.net
18.11.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísland stekkur upp um þrjú sæti á heimslistanum

Ísland stekkur upp um þrjú sæti á heimslistanum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland hefur unnið sig upp um þrjú sæti á nýjasta heimslista FIFA sem var gefinn út eftir síðasta landsleikjaglugga. Liðið fer úr 73. sæti upp í það sjötugasta. Liðið hefur ekki verið ofar síðan í desember 2024.
Ísland hefur spilað virkilega vel undanfarið og vann báða leikina í síðasta glugga. Þá hefur liðið unnið síðustu fimm leikina.

Ísland fór upp fyrir Jórdaníu og Norður-Makedóníu ásamt Grænhöfðaeyjum sem voru spútníklið HM en liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum gegn Argeentínu.

Fjögur efstu sætin á heimslistanum eru óbreytt. Spánn er á toppnum, Argentína, Frakkland og England koma svo þar á eftir. Marokkó stekkur upp um tvö sæti í það fimmta en Portúgal og Brasilíai falla niður um eitt sæti.

Kólumbía fór upp um eitt sæti í það tíunda og Þýskaland stökk upp um tvö sæti í 11. sæti.

Heimild: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.