Fotbolti.net
18.11.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Meistaradeild kvenna: Karólína sá rautt gegn Real Madrid

Meistaradeild kvenna: Karólína sá rautt gegn Real Madrid
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fékk rautt spjald þegar Inter tapaði gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.

Real Madrid komst yfir en Karólína fékk rautt spjald fyrir að fara í ökklann á Arianna Caruso undir lok fyrri hálfleiks. Inter tókst að jafna metin stuttu síðar.
Signe Bruun gerði út um leikinn undir lokin þegar hún tryggði Real Madrid sigurinn með tveimur mörkum. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í markinu hjá Inter.

Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Hacken sem tapaði gegn Man City.

Man City og Real Madrid eru í 3. og 4. sæti með níu stig eftir fimm umferðir. Inter er í 13. sæti með 4 stig og Hacken í 16. sæti með 2 stig.

Inter þarf á sigri að halda gegn Arsenal og Hacken gegn Lyon til að eiga möguleika á að komast áfram.

Hacken W 0 - 2 Manchester City W
0-1 Lauren Hemp ('55 )
0-2 Khadija Shaw ('77 )

Real Madrid W 3 - 1 Inter W
1-0 Lineth Beerensteyn ('28 )
1-1 Michela Cambiaghi ('45 )
2-1 Signe Bruun ('85 )
3-1 Signe Bruun ('94 , víti)
Rautt spjald: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Inter W ('42)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.