Fotbolti.net
18.11.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Áætla að vatnspásurnar verði líka á næsta HM

Argentínumenn fá sér vökva.

Argentínumenn fá sér vökva.

Canon

Mynd: EPA

Vatnspásurnar voru mikið í umræðunni á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar. Þriggja mínútna hlé var gert um miðjan fyrri hálfleik og svo aftur um miðjan seinni hálfleik.

Áhorfendur á mótinu bauluðu oft þegar vatnspásurnar voru en þær brutu upp leikinn og höfðu talsverð mikil áhrif á hann. Þjálfararnir notuðu þær til að koma skipunum og reyna að breyta þróun leiksins.

Þessi hlé reyndust hinsvegar gullkista fyrir marga sjónvarpsrétthafa.
Umdeildu vatnspásurnar frábær viðbót fyrir sjónvarpsstöðvar
TENGT EFNI

Umdeildu vatnspásurnar frábær viðbót fyrir sjónvarpsstöðvar

Í útboðsgögnum FIFA fyrir sjónvarpsréttindi fyrir HM 2030 er ákvæði um auglýsingar í vatnspásum sem er sterk vísbending um að þessi umdeildu hlé verði áfram á næsta móti.

FIFA heldur því fram að enn hafi ekki verið ákveðið hvort vatnspásur verði notaðar á mótinu 2030, sem fer að mestu leyti fram í Marokkó, Spáni og Portúgal,

Guardian hefur hinsvegar komist að því að vatnspásurnar séu nefndar í útboðsgögnum til sjónvarpsstöðva.
Áætla að vatnspásurnar verði líka á næsta HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.