18.11.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Juan Mata leggur skóna á hilluna

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski töframaðurinn Juan Mata hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril. Mata, sem fékk gælunafnið El Mago eða Töframaðurinn, greindi frá tíðindunum í dag.
Hann þakkar fótboltanum fyrir og segir að stundum komi að kveðjustundum. Í myndbandi hengir hann takkaskóna á snagann.
Mata er 38 ára og ólst upp hjá Real Oviedo og Real Madrid. Hann hóf meistaraflokksferilinn í varaliði Real Madrid, fór næst til Valencia, svo Chelsea og svo Manchester United þar sem hann spilaði lengst á sínum ferli. Hann lauk ferlinum í Ástralíu en hafði þar á undan spilað bæði í Tyrklandi og Japan.
Hann lék 41 landsleik fyrir Spán og skoraði í þeim tíu mörk. Hann varð Evrópumeistari með U19 og U21 hjá spáni og svo heims- og Evrópumeistari með spænska A-landsliðinu.
Hann varð spænskur bikarmeistari hjá Valencia, vann Meistaradeildina og Evrópudeildina með Chelsea og vann svo Evrópudeildina aftur með Manchester United. Hann varð ensur bikarmeistari bæði með Chelsea og United og vann einnig deildabikarinn hjá United.
Hjá Galatasaray vann hann tyrknesku deildina og Vissel Kobe varð japanskur meistari á hans tíma þar.
Hann var leikmaður ársins hjá Chelsea árin 2012 og 2013 og var valinn í lið ársins tímabilið 2012-13 í úrvalsdeildinni þar sem hann lagði upp flest mörk allra í deildinni.

Sometimes, to love… is to let go.
— Juan Mata García (@juanmata8) November 18, 2026
THANKS FOOTBALL. ??????
A veces, amar… es dejar ir.
GRACIAS FÚTBOL. ?????? https://t.co/v7otd6AyOq

Mynd: EPA