Fotbolti.net
18.11.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gæti Poch fengið sinn fyrrum lærisvein til að leysa vandamál United?

Gæti Poch fengið sinn fyrrum lærisvein til að leysa vandamál United?
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino, nýr stjóri Manchester United, er mættur á æfingasvæði félagsins, Carrington og er undirbúningur fyrir stórleikinn gegn Liverpool hafinn.

Enskir miðlar hafa rýnt í leikmannahóp United og velt því fyrir sér hvar Pochettino myndi vilja styrkja liðið. Ein augljósasta staðan er vinstri bakvörður en United var sterklega orðað við Lewis Hall hjá Newcastle í sumar en ekkert varð úr því að enski landsliðsbakvörðurinn kæmi á Old Trafford.

Diogo Dalot hefur leyst stöðu vinstri bakvarðar á meðan þeir Luke Shaw og Patrick Dorgu hafa glímt við meiðsli.
Í miðlum í dag eru nokkur nöfn orðuð við United og þar á meðal er Antonee Robinson sem er vinstri bakvörður Fulham og bandaríska landsliðsins. Pochettino þjálfaði hann í landsliðinu og Robinson hefur verið orðaður við United áður. Fulham er meðvitað um áhuga á hinum 29 ára Robinson en ekkert félag hefur boðið í hann.

Alejandro Balde hjá Barcelona og Rayan Ait-Nouri hjá Manchester City eru einnig orðaðir við United.

Varðandi mögulega styrkingu í hjarta varnarinnar eru nöfn Calvin Bassey (Fulham) og Jarrad Branthwaite (Everton) og það er einnig talað um að United þurfi framherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.